Kjúklingur og kalkúnn eru ekki bara góð og holl fæða, heldur hráefni sem gaman er að prófa eitthvað nýtt og spennandi með. Það er lítið mál að elda fuglakjöt – og skemmtilegast að gera það alveg eftir eigin höfði. En svo getur líka verið gott að hafa uppskriftir að styðjast við. Hér eru nokkrar af uppáhaldsuppskriftunum okkar hjá Ísfugli – góða skemmtun í eldhúsinu og verði ykkur að góðu!
Mikilvægt er að gæta hreinlætis þegar fuglakjöt er eldað. Vökvi úr kjötinu má aldrei snerta grænmeti eða aðra ferska matvöru. Hins vegar er fátt jafn gott með kjúklingi og einmitt grænmeti. Mikilvægt er að kjötið sé gegnsteikt.