Hátíðasalat með aprikósusósu (fyrir 2-3)
- KJÚKLINGAUPPSKRIFTIR
- 0 Comments
Hráefni
1 búnt salat (t.d. Lambhagasalat eða Rucola)
1 greipaldin (rautt)
400 g soðið kjúklinga- eða kalkúnakjöt
1/2 dós niðursoðnar apríkósur
Aðferð
- • Rífið salatið niður. Afhýðið greipaldin og skerið í bita.
- • Skerið kjötið og apríkósurnar í strimla (haldið einni apríkósu eftir til að nota í sósuna).
Sósa
1 dós sýrður rjómi (10%)
1 apríkósa, ásamt smávegis safa úr dósinni
1 tsk.nýmalaður pipar
1/2 tsk natríumskert salt
2 msk. apríkósusulta
Aðferð
- • Blandið smátt saxaðri apríkósu, safa og apríkósusultu út í hrærðan sýrða rjómann.
- • Kryddið með salti og pipar og berið fram sér með salatinu.
- • Berið fram með grófu brauði.
0 Comments