BBQ-vængir með sesam- og gráðaostasósu (fyrir 4-6)
- KJÚKLINGAUPPSKRIFTIR
- 0 Comments
Hráefni
20 stk. kjúklingavængir
1 dl BBQ-sósa
2 msk. sesamfræ
Aðferð
-
• Hitið ofninn í 180°C og bakið vængina í 20 mín.
• Penslið vængina þá með BBQ-sósunni og dreifið sesamfræjunum yfir þá.
• Bakið í 5 mín. til viðbótar og berið fram með sósunni.
Gráðaostasósa
1 dós sýrður rjómi (18%)
1-2 msk. gráðaostur
hvítur pipar, nýmalaður
Aðferð
-
• Þeytið sýrða rjómann og gráðaostinn vel saman.
Kryddið með pipar eftir smekk.
0 Comments